Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Minns

Teljari

Innskráningar kubbur

Snúsin

Bloggarar

Gagnasafn

Alveg að koma áramótHugborg Hjörleifsdóttir

Þá eru að koma áramót með öllu tilheyrandi, já eða næstum. Spáið í því að á Egilsstöðum á áramótabrennan að vera kl. 17 en ekki milli 20 og 21 eins og alls staðar annars staðar á landinu. Ég er svo rosa hneyksluð og gegt fúl yfir þessu öllu saman að ég er við það að breyta fluginu mínu bara og vera í Rvk. um áramót. Ekki nóg með að brennan sé á svona hallærislegum tíma á meðan allir eru að elda matinn, þá á flugeldasýningin að auki að vera kl. 17:30. Það er sem sagt verið að prófa eitthvað nýtt á Fljótsdalshéraði. Svo hallærislegt!!!!!!!! Það er eitthvað verið að tala um að þetta sé svo litlu börnin missi ekki af þessu því þau séu annars farin að sofa. Common... Það eru engin börn sem eiga á annað borð erindi á brennu og flugeldasýningu farin að sofa á milli 20-21 á gamlárskvöld. Well ég er alla vega alveg brjál yfir þessu og finnst áramótin eila bara ónýt LEn það er nú annað sem fær mig til að brosa, kallinn kemur á morgun. Hef ekki séð hann í alltof marga daga! Ég var að spá í að fara með hann í Oddsskarðið á föstudag og athuga hvort það er ekki hægt að kíkja aðeins á bretti í harðfenninu. Þar sem ég hef aldrei farið á bretti þá er það sennilega ekki besta færðin og ég gæti endað með marbletti...Alla vega þá hef ég ekki mikið að segja. Ég ætti sennilega að vera að læra þar sem marr stóð sig svona svaka illa í skólanum þessa önnina en það er bara alveg ótrúlegt hvað það gengur aldrei neitt að læra þegar marr kemur heim til mömmu og pabba. Þó svo það séu allir að vinna og enginn heima nema brósi þá enda ég alltaf á að gera ekki neitt.Anyways laterP.s. vissuði að hákarlar og skötur eru einu dýrin sem ekki geta dáið úr krabbameini?

Svo lötHugborg Hjörleifsdóttir

Ég hef nú ekki nennt að blogga í heillangan tíma enda mikið búið að vera að gera. Prófin kláruðust 12. des.og það var mikill unaður þó ég vissi nú að ég þyrfti alla vega að taka eitt upp. Föstudaginn fyrir um viku hélt Þuríður smá teiti í tilefni þess að hún var að klára skólann og er alveg að verða rafvirki. Eftir áramótin ætlar hún svo að flytja austur á hérað í íbúðina mína því hún ætlar að vinna á Reyðarfirði í álverinu. Ég veit nú samt ekki alveg hvað hún endist lengi hér því einn ágætis piltur er búinn að krækja í hana og ég veit hvað það er erfitt að vera 700km í burtu frá kallinum. Þar sem ég er búin að vera á Austurlandinu í eina viku og er að verða vitlaus af að sjá ekki kallinn minn þá finnst mér hún nú helv... dugleg að ætla áfram að flytja hingað. Alla vega ég þarf að þjóta, er að fara að skjóta með pabba mínum...Klára helstu atriði síðar.P.S. það fæddist lítil snót í gær, 17 merkur og 54 cm. Vona að fjölskyldan komist heim á aðfangadag JBabæ í bili, Hugborg

Próf eftir smá stund....Hugborg Hjörleifsdóttir

Það byrjar próf í tölfræði kl 2 og ég er að fara yfir um!!! Get ekki lært meir þegar ég er svona stressuð svo nú er það bara netið. Það er svo bara eftir eitt annað próf, rekstrarstjórnun á þriðjudaginn. Eftir það ætti að vera ljúft líf en það er svo mikið að gera að mig grunar að ég þurfi að minnka svefninn soldið. Ég var nebbla að skoða skipulagið mitt og ég gleymdi að gera ráð fyrir því að ég ætti eftir að kaupa jólagjafirnar!!!! Það er bara hrikalegt, ég er ekki búin að kaupa eina einustu gjöf.
Garg ég get ekki einu sinni skrifað fyrir stressi Gráta
Kannski það sé bara best að fara út að hlaupa eða eitthvað... Sé það ekki alveg gerast en hvað um það.
Ein að fríka út kveður í bili

Próf, lasin, próf.....Hugborg Hjörleifsdóttir

Ég sit bara og bíð eftir að klukkan verði 14 því þá er ég að fara í próf í Gerð og greiningu ársreikninga og já það er jafn leiðinlegt og flókið og það hljómar. Ég er sem sagt búin að vera veik síðan á þriðjudaginn og hef því ekki lært neitt fyrir þennan ömurlega áfanga og mér finnst ekki skemmtilegt að fara í próf óundirbúin. Svo get ég ekki hætt að hugsa um það þegar  þetta er búið. Þá ætla ég að gera svo margt, þrífa allt hátt og lágt, fara í klippingu, kaupa jólagjafirnar, kíkja í heimsóknir, baka smá með Sæsu frænku og örugglega margt fleira :)
Æ ég hef ekkert að segja held ég svo ég kveð bara í bili...

Ó mí godHugborg Hjörleifsdóttir

Hvernig á maður að fara að því að lesa allt sem þarf að lesa fyrir eitt próf ef námsefnið er gert svo leiðinlegt að marr er bara sofnaður þegar ein og hálf blaðsíða er búin. Ég er bara búin að sofna tvisvar yfir bókunum í dag og klukkan er rétt að ganga 2. Held að ég þurfi að fara að drekka kaffi... og það mikið af því.
Annars er bara voða lítið að frétta, ég er nánast búin að skipuleggja alveg þessa 5 daga sem ég hef á milli þess sem ég klára prófin og fer svo austur. Vátz hvað ég hlakka til að hafa ekki samviskubit yfir að vera ekki að læra.
Well ætli ég reyni ekki að byrja að lesa aftur ef ég ætla að reyna að klára þetta efni fyrir þriðjudaginn.

Brjál að gera elskurnar!!!!!!!Hugborg Hjörleifsdóttir

Fyrir 24. nóvember þarf ekki að skila nema þremur hópverkefnum í viðbót og fara í eitt próf 17. nóv. Sem og að ég átti að vera búin að þýða 65 blaðsíður helst í fyrradag en það er ekki búið!!! Prófin byrja svo 28.nóv. og síðasta prófið er 12.des. Hvað segiði voru jólin ekki að nálgast, hljómar ekki beint svoleiðis. En vátzí hvað ég hlakka til 12.des. Ullandi

Ég er meira að segja farin að skipuleggja dagana eftir prófin. Mig langar gegt að kíkja aðeins til Víkur einn daginn, heimsækja hana ömmu mína og sennilega einhverja fleiri. Vona bara að veður og færð verði mér í hag sérstaklega þar sem það stendur ekki til að kaupa nagladekk. 16. des ætlar Þuríður að gera eitthvað skemmtilegt því hún er að útskrifast þann 20. Kristrún kemur líka heim 13. og það verður nú ekki leiðinlegt að sjá hana aftur Hlæjandi Það stendur svo til að keyra heim 17.des. Svo ætla ég líka að einoka kallinn minn þessa daga þar sem ég á ekki eftir að sjá hann svolítið lengi.... En haldiði ekki bara að ég sé búin að plata hann til að vera með minni familíu um áramótin sem þýðir að hann þarf að fara út á land. Ég hélt í alvöru að mér ætti aldrei eftir að takast að koma borgarbarninu út fyrir borgina Brosandi Mín gegt klár.

Ætli þetta sé ekki bara orðið nóg í bili.

P.s. kæró fór með mig á skauta á laugardaginn, það var bara skemmtilegt þó svo hann hafi þurft að halda í mig og draga mig nánast allan tímann ;) en ég komst frá þessu óbrotin og fannst svaka skemmtilegt.

Skautadrottningin biður bara að heilsa....

gifting....Hugborg Hjörleifsdóttir

Hvað segiði um brúðkaup á næsta ári?? Í september kannski bara. 
Það er svo mikið um brúðkaup í kringum mig þessa dagana að ég er alveg að verða rugluð. Mig er meira að segja farið að dreyma um þau, ekki endilega mitt eigið en brúðkaup fyrir það. Einn, tveir og allir að hætta að gifta sig í mánuð eða svo og ekki tala um brúðkaup á næstunni. Þannig næ ég kannski þessu rugli úr mér.
En neinei ég er ekki að fara að gifta mig, finnst bara allir vera á þessum buxunum síðustu daga.

Ein svaka í ruglinu... Ekki segja frá.

Mín aftur komin í GrafarvoginnHugborg Hjörleifsdóttir

 Ég átti að byrja að passa kanínkuna hana Pílu í gær því María frænka er farin til Barcelona. Vegna veðurs þá komst hún ekkert í gær svo ferðinni seinkaði um rúman sólarhring. En hingað er ég nú samt komin núna í yndislegu íbúðina hennar Maríu og mig grunar að þvottavélin hennar eigi soldið eftir að finna fyrir því þetta er æðislegt apparat!

Í kvöld ætla ég að njóta þess að búa ein í íbúð en ekki bílskúr og ég hafði hugsað mér að elda eitthvað svaka gott sem mig hefur langað í lengi, var líka að spá í að bjóða kallinum með því ég held að hann eigi alveg inni máltíð hjá mér Hlæjandi Vona að hann verði svangur því ég keypti allt sem mig langaði í þegar ég var í búðinni og já það er heill hellingur.

En þá er það síðustu dagar. Á miðvikudaginn fór ég í nudd vegna þess að ég var búin að kvarta svo mikið yfir vöðvabólgu að allir voru að verða vitlausir á mér. Nuddið var alveg hreint ágætt, soldið sársaukafullt en mjög fínt. Það sama get ég ekki sagt um daginn eftir já eða næstu daga á eftir, ég var eins og gömul kella sem getur sig varla hreyft. Harðsperrurnar eru þó farna núna og ég veit ekki betur en að það sjáist ekki á mér.... Veit ekki alveg hvort ég á að hlakka til næsta tíma eða kvíða fyrir, vona alla vega að þetta virki eftir nokkur skipti.

Síðasta helgi var alveg hreint ágæt, við fórum í brúðkaup á laugardaginn hjá Mása og Hennýju. Rosalega fallegt brúðkaup og ég skemmti mér þokkalega miðað við að þekkja engan!!! Veðrið var þó því miður ekki upp á marga fiska en sagt er að það eigi að tákna sterkt og gott hjónaband svo ég vona að það gangi eftir.

Í gær fórum við, ég og Bjarni til mömmu hans og elduðum og sols því hún átti afmæli á laugardaginn. Það var voða skemmtilegt bara, hef ekki komið þangað áður.

Jæja þetta er löngu orðið nóg svo ég kveð.....

Svona fyrir þá sem lesa reglulega....Hugborg Hjörleifsdóttir

.....þá fór ég heim á Egilsstaði um þarsíðustu helgi og það var svakalega yndislegt. Ég hitti nú flest alla held ég nema Súsan, við mættumst sennilega bara í loftinu. Alla vega þá lítur Elín frænka svaka vel út, kúlan stækkar og stækkar sem og litli snúllinn hennar sem verður sætari með hverjum deginum. Ég efast ekki um að það komi annar eins sætur um jólin Hlæjandi

Eitt það skemmtilegasta sem ég gerði þessa helgi var að fara að skjóta. Ég, pabbi og Bjössi fórum í smá rjúpu leiðangur. Það var bara ógeðslega skemmtilegt enda veiddi ég mína fyrstu rjúpu. Hlæjandi Núna er ég nokkuð viss um að ég get tekið byssuleyfið án mikilla vandræða, þarf bara að æfa mig pínu meira og safna smá pening.

Þetta var sem sagt frábær helgi í alla staði og mamma mín eldaði líka allt sem mig langaði í svo ég kom svolítið pattaraleg til baka en það er kannski bara gott að safna aðeins fyrir veturinn Ullandi

 

Nýjasta nýtt er að vinkonuhópurinn fór út að borða á Apótekið síðastliðinn laugardag. Að sjálfsögðu drógum við kallana með sem var náttla bara skemmtilegt. Við sátum, borðuðum og drukkum þarna framyfir miðnætti og ég held að það hafi bara allir skemmt sér ágætlega. Eftir að við fengum þennan svakalega reikning sem hljóðaði bara upp á 160þúsund kall (var að sjálfsögðu einhver misskilningur) þá fóru flestir á Player´s og dönsuðu af sér rassinn þar. Ég aftur á móti fór bara heim að lúlla en kallinn minn kíkti í bæinn. Hann kom auðvitað hálfveikur heim og var varla viðræðuhæfur allan sunnudaginn. Það er svona að drekka of mikið. Ég held að ég láni Óla frænda hann ekkert aftur ef hann getur ekki komið honum heim í skikkanlegu ásigkomulagi. Djók ég er bara fegin að það er ekki ég sem er veik allan daginn Brosandi

Drengirnir mínir tveir eru nú sam í alvöru veikir núna, kvef- og magapest svo ætli það sé ekki best að ég haldi mér sem mest í skólanum bara.

Jæja nóg í bili, kominn tími til að gera eitthvað

Later...

Bara af því að Ragna sagði það.... :)Hugborg Hjörleifsdóttir

Ég ákvað að búa til nýja síðu með þessu fína bloggari.is, því Ragna benti mér á að það væri laust með nafninu mínu. Svo ég ákvað að athuga hvernig þetta virkar. Lofa því ekki að ég verði dugleg en það má alla vega reyna eina ferðina enn Brosandi
Skrifa aftur seinna í dag
Hugborg
Síða 7 af 7