hugborg.bloggar.is
Allt að gerast á þessum bæHugborg Hjörleifsdóttir
Þá er Moli mættur á svæðið og það verður að viðurkennast að lífið hefur ekki verið dans á rósum alla daga síðan hann kom. Fyrsta nóttin var nánast alveg svefnlaus því þegar hann loksins hætti að væla og sofnaði þá vældi hann í svefni í staðinn. Dagurinn var því voðalega erfiður, hann hálf kvektur eitthvað og ég rosa þreytt, ekki góð blanda. Þetta hefur því verið upp og niður síðan hann kom til mín en ég vissi það svo sem. Í gær gekk allt bara ótrúlega vel fyrir sig. Við fórum meira að segja í matarboð til Rögnu og hittum Hildi þar. OMG Ragna, takk kærlega fyrir ógó góðan mat. Moli var nú ekki mikið partýljón heldur svaf bara allan tímann. Ég hafði því miklar áhyggjur af því að hann svæfi ekkert í nótt EN viti menn, ég sofnaði rétt fyrir eitt og vaknaði ekki við Mola fyrr en rúmlega átta
Ég auðvitað panikaði þegar ég vaknaði því ég hef þurft að vakna tvisvar yfir nótt til að fara með hann út.... en ég held bara sveimér þá að hann hafi ekki gert neitt í búrið sitt og hafi bara sofið alla nóttina.Ég er líka ekki frá því að hann sé að fara að borða eðlilega aftur. Í morgun þurfti ég bara að minna hann tvisvar á að það væri matur í dallinum og svo aðeins seinna fór hann bara alveg sjálfur og kláraði matinn sinn
ohhh svo stolt móðir, hehe.Stundum hefur myndin Marley and Me komið upp í hugann síðust daga. Þegar við erum að fara út byrja ég á því að fara í skó og úlpu og ætla svo að halda á honum út þar sem hann kemst ekki strax upp stigann og svona. Moli aftur á móti telur eitthvað annað vera að gerast og tjúllast bara...hleypur beint inn aftur með svaka látum, ég veit ekki hvað ég á að gera við drenginn. Við fórum út í smá göngutúr í gærkvöldi og tókum Bjarna með okkur. Við sem sagt fórum með Bjarna í göngutúr, já eða Moli með Bjarna í göngutúr.... Bjarni var bara móður eftir þetta allt saman. Moli sem sagt sikksakkar um gangstéttina eins og óður og Bjarni hélt í spottann og sikksakkaðist á eftir, gaman að þessu.
Alla vega, nóg í bili. Ég set inn myndir bráðlega.
Tata
HH
Athugasemdir
2
Mattý skrifar:
Ég verð að kíkja í heimsókn til þín fljótlega til að kíkja á krílið :-)
18. júní 2009 klukkan 10:43
3
Hugborg skrifar:
Það eru komnar nokkrar myndir, var að reyna að setja inn myndband þar sem hann er að leika með nýja dótið frá mömmu (ömmu) en ég bara kann það ekki.
Ættarmótið, ég er ekki viss hvort ég komist því það gæti verið erfitt að fara í útilegu á hækjum.
Mattý þú ert velkomin í heimsókn, ég verð meira og minni heimavið næstu tvær vikurnar.
Ættarmótið, ég er ekki viss hvort ég komist því það gæti verið erfitt að fara í útilegu á hækjum.
Mattý þú ert velkomin í heimsókn, ég verð meira og minni heimavið næstu tvær vikurnar.
20. júní 2009 klukkan 16:03
4
Þorbjörg K skrifar:
Hann er algjör dúlla!!
Það er örugglega ekkert mál að fara á ættarmót á hækjum, þú lætur bara liðið stjana við þig :)
Það er örugglega ekkert mál að fara á ættarmót á hækjum, þú lætur bara liðið stjana við þig :)
21. júní 2009 klukkan 00:19
5
Þuríður skrifar:
Sæti sæti sykurhnoðri, ekkert smá krútt :D:D þið eruð vonandi á leiðinni austur fljótlega og tala nú ekki um á ættarmót um helgina :P mikið er gott að það gengur vel hjá ykkur, og vona að þið hafið það gott, já gott hjá Mola að viðra Bjarna veitir greinilega ekki af ;) hehe hafið það gott :)
23. júní 2009 klukkan 08:46
6
Henný Birna skrifar:
Moli er svo sætur, en hefði verið til í að sjá ykkur í göngutúrnum hehe:)
23. júní 2009 klukkan 20:02
7
dissertation skrifar:
What you posses is yours and everyone should treat it respectly.
21. desember 2011 klukkan 15:01

Sjáumst við ekki á ættarmóti?