hugborg.bloggar.is
Fyrsta heimsóknHugborg Hjörleifsdóttir
Jæja þá er Moli búinn að koma í fyrstu heimsóknina og hún gekk bara ágætlega. Hann auðvitað byrjaði á því að skíta á gólfið og ég verð nú að segja að bæði hvolpur og eigandi stóðu sig nokkuð vel við það verkefni. Hann vældi nánast ekkert í heimsókninni enda nóg af fólki til að leika við hann. Á morgun kemur hann aftur í heimsókn og hún verður svolítið lengri eða um 5 klst eða svo. Það ætti að vera ágætis aðlögun fyrir innflutningsdag sem verður á föstudag. Frá og með föstudegi verð ég því í hvolpaorlofi, vonandi gengur það allt vel.Mín er nú svolítið farin að kvíða fyrir fyrstu nóttinni
góð ráð eru vel þegin...Alla vega þá ætla ég ekki að hafa þetta neitt lengra. Ég hef ekki heyrt neitt af aðgerðinni ennþá en samkvæmt planinu þá á hún að vera í næstu viku. Við vitum þó öll að plön ganga sjaldan eftir....
Ég setti inn nokkrar myndir af Mola
Later
HH
Athugasemdir
1
Þuríður skrifar:
Spennandi!!! Ohh hvað það hlýtur að vera gaman að vera að fá svona fínan fjölskyldumeðlim :) það tístir bara í manni, vona að ykkur gangi bara rosalega vel að aðlagast hvort öðru og ég sé ekki annað fyrir mér en að Moli litli eigi eftir að vera sáttur hjá þér Hugborg mín;) Hafðu það rosa gott og góða skemmtun í hvolpaorlofi ;)
10. júní 2009 klukkan 08:06
2
Hugborg skrifar:
takk takk takk takk takk :)
10. júní 2009 klukkan 16:25
3
Hrönn skrifar:
oh maður bráðnar bara við að sjá hann :)
vonandi náum við að kíkja á hann/ykkur um helgina ;)
Bara skondin myndin af Mola liggjandi útaf og Óli að klóra sér í hausnum eins og hann skilji ekkert hvað sé í gangi hehe
vonandi náum við að kíkja á hann/ykkur um helgina ;)
Bara skondin myndin af Mola liggjandi útaf og Óli að klóra sér í hausnum eins og hann skilji ekkert hvað sé í gangi hehe
10. júní 2009 klukkan 20:51
4
Ragna Björg skrifar:
AAAAAAA!!!!! krútt.is sætur.is og meira rassgatið !
steinsofandi á gólfinu. haha..
fyrstu næturnar taka svoldið á taugarnar hjá eigendunum. Við fórum bara alveg eftir ráðleggingum frá eiganda mömmu jobba. Prufuðum fyrst að láta hann vera einan, gekk ekki... Fékk þá að gista í búrinu inni hjá mö og pa og svo var búrið fært inní þvottahús, ekki lokað en sett spjald neðst svo að það var samt "lokað" og á endanum var lokað hurðinni og hann er sæll með að eiga sitt búr.

11. júní 2009 klukkan 00:31
5
Hugborg skrifar:
Auðvitað velkomin Hrönn :)
Takk fyrir þetta Ragna, ég held að ég þurfi einmitt að byrja inn í herbergi.
Takk fyrir þetta Ragna, ég held að ég þurfi einmitt að byrja inn í herbergi.
11. júní 2009 klukkan 20:12