hugborg.bloggar.is
HelginHugborg Hjörleifsdóttir
Jæja þá er svaka helgi yfirstaðin. Ég og karlinn fórum í bústað um helgina, alveg alla leið á Bifröst. Við ákváðum að fara á mótorhjóli á Bifröst og OMG hvað það var erfitt. Auðvitað þurfti að koma ógó vont veður á föstudaginn en við erum svo þrjósk og gegt rugluð að við fórum samt af stað í alltof miklu roki. Við vorum sem sagt um 2 og hálfan tíma að fara þessa leið, að vísu fórum við Þingvallaleið og einhverja króka en jiminn hvað það var langt og erfitt. Þetta var svaka lífsreynsla sem ég gleymi ekki í bráð
Það meira að segja kom smá snjókoma hehe. Það rættist nú samt alveg úr þessu þar sem við grilluðum okkur góðan mat seint og um síðir og skelltum okkur í voða fínan heita pott. Svo á laugardeginum var voða gott veður, ég fékk meira að segja smá freknur sem er voða vinsælt. Tengdó kíkti í heimsókn á hjóli líka með konuna sína. Þau voru voða svöl á sitthvoru hjólinu, kannski ég verði bara svona líka einn daginn. Alla vega nóg um það, veðrið var voða fínt á leiðinni heim og þá naut maður þess til fulls að keyra um á hjóli 
Hef eitthvað lítið annað að segja í bili held ég. Ég kíkti á litla sæta hvolpinn minn á fimmtudaginn og núna er þetta loksins orðið alvöru. Hann er orðinn þriggja vikna og hrikalega sætur. Ef þið skoðið myndirnar þá er molinn minn litli sæti svarti hvolpurinn með rauðu ólina.
Anyways ég ætla að halda áfram að láta mig dreyma um molann minn og fara að undirbúa svefninn.
Later
H
Athugasemdir
1
Mattý skrifar:
Ég hugsaði einmitt til ykkar á föstudagskvöldið, hvort þið ætluðuð virkilega að fara Hafnarfjallið á hjólinu! Gott að það gekk allt vel :-)
11. maí 2009 klukkan 16:48
2
Þuríður skrifar:
ohh hvað þetta hlýtur að hafa verið gaman :D ætla að fara að skoða myndir af molanum þínum, hafðu það rosa gott.
12. maí 2009 klukkan 12:55
3
Hrönn skrifar:
óttaleg krútt eru þetta :)
Gott að þið áttuð góðar stundir í bústað :)
Gott að þið áttuð góðar stundir í bústað :)
13. maí 2009 klukkan 16:57
4
Þuríður skrifar:
sæti sæti hvolpur, og hann tekur vel til matar síns, rosa flottur :D ohh.. hvað ég öfunda þig MIKIÐ!!!
14. maí 2009 klukkan 13:33
5
resume skrifar:
He didn't do any contributions to collective work.
21. desember 2011 klukkan 15:04
