hugborg.bloggar.is
mömmóHugborg Hjörleifsdóttir
First things first, löppin mín er bara alveg hreint ágæt. Ég er komin með þokkalegt brjóst á kálfann sem stækkar í hverri viku. Nú vantar bara geirvörtuna
neinei segi bara svona. Geri ráð fyrir að ég fari í seinni aðgerðina um miðjan maí eða seinnipart maí. Miðað við hvað þetta gengur hægt eitthvað þá sennilega ekki fyrr en seinnipart mánaðarins.Og svo er það þetta stóra mömmó mál.
Þann 17. apríl fæddust 9 sætir labrador hvolpar og ég fæ einn
Það fæddust tveir svartir rakkar og ég fæ að velja mér annan þeirra í næstu viku eða um næstu helgi. Svo 12. júní fæ ég hann heim. Ég hlakka rosa mikið til en kvíði líka nett fyrir, ég kann ekkert á svona hvolpa. Ef það væri um barn að ræða þá er ég nokkuð viss hvernig á að meðhöndla það enda passað þau nokkur en það á ekki það sama við um hvolpa. Ég hef meira að segja haldið mig soldið í fjarlægð frá þeim hingað til, eða þar að segja hundum almennt svo ég veit ekkert hvaðan þetta hvolpaæði kemur.Alla vega það fer alveg að koma að þessu. Hér eru myndir af hvolpunum:
http://holabergsraektun.123.is/pictures/
Ég bara kann ekki að setja þetta eitthvað flott upp svo þið verðið bara að redda ykkur með linkinn. En þarna inni er sem sagt líka myndir af mömmunni sem heitir Lísa og pabbanum sem heitir Lubbi.
Svona í lokinn þá eru allar ráðleggingar og leiðbeiningar vel þegnar. Já og svo er ég ekki alveg búin að ákveða nafnið svo tillögur eru líka vel þegnar.
Tata í bili
H
Athugasemdir
1
mamma skrifar:
Gormur:-)
26. apríl 2009 klukkan 21:45
2
Hugborg skrifar:
Jábbs mamma, þetta nafn er efst á listanum eins og er :)
27. apríl 2009 klukkan 19:27
3
Hrönn skrifar:
Kormákur... þetta nafn er svo fast við ykkur eitthvað hahaha
28. apríl 2009 klukkan 17:07
4
Þuríður skrifar:
langaði að segja þér hvað mér finnst hvolparnir gorgeus, sko mér finnst Kobbi rosa fallegt því hundarnir sem ég átti þeir hétu Kobbi :D voru gulir labrador voða sætir;) en ég veit að þú finnur eitthvað fallegt nafn ;) vona að þú hafir það gott og að allt hafi gengið vel ;)
29. apríl 2009 klukkan 08:40
5
Hugborg skrifar:
Hrönn ég skil ekki hvaðan þú færð svona hugmyndir hehe, djók.
Þuríður mér finnst þetta góð hugmynd en ég tengi nafnið við eitthvað allt annað :s
BTW það eru komnar inn nýjar myndir :) 11 daga gamlir.
Þuríður mér finnst þetta góð hugmynd en ég tengi nafnið við eitthvað allt annað :s
BTW það eru komnar inn nýjar myndir :) 11 daga gamlir.
30. apríl 2009 klukkan 16:48
6
Sigrún G skrifar:
Kannski Kolur eða Sambó (litli svarti Sambó)
05. maí 2009 klukkan 13:50
7
Hugborg skrifar:
takk takk, allt góða hugmyndir. Ég er að fara til að hitta dúlluna í fyrsta skiptið á eftir og ætli það verði ekki bara tekin ákvörðun þá :)
07. maí 2009 klukkan 16:59
