Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Minns

Teljari

Innskráningar kubbur

Snúsin

Bloggarar

Gagnasafn

arg og garg skiljiðiHugborg Hjörleifsdóttir

Að skakklappast um á hækjum er að gera mig gjörsamlega gúgú.

Fyrir það fyrsta þá er mig farið að dreyma um það, í svefni, að ég vakni einn morguninn og standi upp úr rúminu í báðar lappirnar... ekki gott þar sem vinstri fóturinn virkar ekki alveg í augnablikinu. Ég er sem sagt fáránlega hrædd um að skemma eitthvað, eða ég er alla vega hrædd um það í svefni.

Annað þá er ég búin að komast að því að ég er með ógó lélegar hendur. Bara það að fara í búðina gerir alveg út af við mig. Ég fæ meira að segja marbletti í lófana og samt er ég með barnasvampa utan um handföngin! Algjörar baby hendur, hehe.

Svo er það allt hitt. Ég get ekki gengið, á í erfiðleikum með að finna mér að éta því ég þarf að hoppa út allt. Ef mig langar í vatn þá þarf ég að standa við vaskinn og drekka það þar því hey það fer upp úr glasinu þegar marr hoppar með vatn í glasi. Audda er marr búin að redda sér með flösku og svona, en sjút hvað þetta er leiðinlegt til lengdar!!

Ég er svo rosa að deyja úr leiðindum, að vísu er það mest eitthvað sem ég bý mér til sjálf en þig vitið hvernig  þetta er. Það er ekki eins og ég geti farið út að keyra eða út í göngutúr. Kallinn náttla keyrir mig allt sem ég bið hann um en marr reynir að nota það sem allra minnst.

Þetta er sem sagt dagur 10 og ég nenni ekki meir. Vona svo rosa mikið að ég geti farið að ganga á mánudaginn. Svo eftir um 4 vikur þarf ég að ganga í gegnum það nákvæmlega sama aftur. Pjúff ég er ekki farin að hlakka til. Einhvern tíma í maí verður þetta reyndar allt yfirstaðið og vonandi alls þessa virði...

Alla vega ég ætla að hætta að kvarta í bili, fara að borða nammið sem kallinn keypti fyrir mig í dag og já horfa á það setjast á rassinn, lærin og hliðarspikið, OMG. Vonandi get ég lagað það allt í sumar.

Later
H

Athugasemdir

1
þurý skrifar:
Skil að þetta er ömurlega leiðinlegt, en þessu fylgir samt eitthvað jákvætt, þannig keep on going girl ;)
30. mars 2009 klukkan 17:04
2
Hugborg skrifar:
Já það er satt, það fylgir þessu eitthvað jákvætt. Miðað við hvað ég er búin að emja og óa af sársauka í dag þá ætla ég að vona að það sé ávísun á eitthvað jákvætt eftir þetta allt saman.
30. mars 2009 klukkan 19:14
3
Hrönn skrifar:
maður sá nú bara mun á þér á laugardaginn og sunnudaginn við gönguna ;)
06. apríl 2009 klukkan 20:06
4
Hugborg skrifar:
jábbs þokkalega og í dag gat ég meira að segja farið í hælaskó :D þetta er allt að gerast.
08. apríl 2009 klukkan 11:53

Skrifa athugasemd