Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Minns

Teljari

Innskráningar kubbur

Snúsin

Bloggarar

Gagnasafn

Það er löngu kominn mars....Hugborg Hjörleifsdóttir

....og ég ekkert búin að skrifa. Ég er búin að eiga ammili og er orðin soldið eldri, finnst það pínu scary. Orðin 25 ára, OMFG ég er að hugsa um að verða ekki eldri, bara fagna 25 ára ammilinu á hverju ári Smile Ég endaði svaka gott frí á ammilisdeginum mínum og átti kósý dag með kallinum.

Anyways nóg um ammili. Pabbi kom í bæinn á fimmtudaginn, það er náttla bara æði að fá hann reglulega í heimsókn. Hann gerir alltaf það sem ég hef sett á hakann að gera vegna þess að ég hreinlega þori ekki að gera eitthvað. Í þessari ferð skipti hann um viftu inn á klósetti sem er bara draumur einn, þvílík hljóðmengun sem var af þeirri gömlu. Svo setti hann líka upp ljós í stofunni og fyrir ofan eldhúsvaskinn, ljós sem ég fékk í ammilisgjöf frá ma og pa, ógó töff! Og já þokkalega kominn tími til að fá ljós í stofuna, bara eitt ár og rúmir 2 mánuðir síðan ég flutti inn.

Það er alveg hreint furðulegt hvað það er alltaf hreint lítið að frétta. Kannski er það vegna þess marr er alveg hættur að djamma orðið. Hvernig í ósköpunum gat það gerst??? Ég held svei mér þá að ég hafi bara ekki dottið í það á öllu þessu ári, það mætti halda að ég hafi orðið 55 en ekki 25 hérna um daginn....
Á miðvikudaginn fer ég í litla aðgerð til að laga kálfann, verð á spítalanum í nokkra daga og þarf svo að heimsækja spítalann á einhverra daga fresti í sex vikur að mig minnir. Það er pottþétt ástæða til að fara ekki á djammið, hehe nóg til af þeim afsökunum greinilega.

Hmm hef ekkert að segja svo ég ætla að hætta að níðast á tölvunni hans pabba sem hann skildi eftir fyrir mig á meðan mín tölva er dáin Frown
Later
Hugborg

Athugasemdir

1
Andri skrifar:
Gott að heyra að það er ennþá líf í þér og til hamingju með afmælið um daginn. Bestu kveðjur frá DK.
16. mars 2009 klukkan 08:05
2
Hugborg skrifar:
Takk fyrir það Andri, gott að heyra að þú ert enn á lífi í Danaveldi.
17. mars 2009 klukkan 18:06

Skrifa athugasemd