hugborg.bloggar.is
Ég skrapp yfir dalinnHugborg Hjörleifsdóttir
og heimsótti Þuríði
Það var rosa fínt, ég fékk audda köku og nammi og sols. Það er svo endalaust langt síðan ég hef séð hana, ég fékk alveg útrás fyrir taliþörfina já og kökuþörfina. "Litli" brósinn hennar var í heimsókn en hann var lasinn svo ég vona að ég hafi ekki tekið veikindi með mér heim. Ég má alls ekki verða lasin núna því ég er að fara á spítalann í næstu viku til að láta laga örið mitt
Hlakka endalaust mikið til þó ég þurfi að vera þar í 5-7 daga.Fríið mitt er búið að vera bara ansi gott. Ég fór í bústað með familíunni um síðustu helgi og bústaðurinn var geggjaður. Þar var nuddpottur og útsýnið ógó flott, hefði alveg getað búið þarna. Við fórum í smá leiðangur til Landsvirkjunar, held það heitir Fljótsdalsvirkjun eða eitthvað sols, sem sagt stöðvarhúsið. Fengum að fara í göng lengst inn í fjalli og sjá fullt af einhverjum risa vélum.... kann ekki alveg skil á þessu. Svo keyrðum við líka lengst upp á fjall, næstum alla leið upp að Kárahnjúkum. Þar sáum við stíflurnar sem voru bara ógó töff í veðrinu sem var, mjög fallegt veður og snjór yfir öllu.
Hmmhmmhmm hvað er ég búin að gera fleira.
Ég kíkti á litlu börnin mín og fékk að lesa fyrir svefninn og svona. Voða mömmó í mér. Annars er ég bara búin að vera að slaka á, fara í ræktina og sund með Eínu frænku og svona. Hér er allt á kafi í snjó svo ég og Guðlaugur mokuðum frá pottinum áðan og nú er bara að láta renna í hann svo við getum slakað á þar með eitthvað gott í glasi.
Á morgun ætla Elín og Diddi að halda svaka partý því þau urðu þrítug nýlega. Það verður örugglega svaka stuð og marr fær sér náttla aðeins í aðra tána, ég tala nú ekki þar sem ég verð sjálf 25 þegar líða fer á partýið. Svo er það bara Reykjavíkin eftir hádegið á sunnudag, veit ekki alveg hvað tekur við þar.
Farin í pizzarí... later
XOXO
.......
Athugasemdir
2
mamma skrifar:
hæ
02. mars 2009 klukkan 16:09
3
Hugborg skrifar:
Áslaug takk :)
Mamma.. hæ ;)
Mamma.. hæ ;)
03. mars 2009 klukkan 17:30
4
Hrönn skrifar:
oh mig langar líka að fara í bústað og hafa það kósy
knús á þig :)
knús á þig :)
05. mars 2009 klukkan 20:48

Innilega til hamingju með afmælið.