Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Minns

Teljari

Innskráningar kubbur

Snúsin

Bloggarar

Gagnasafn

fullt fullt fullt af myndumHugborg Hjörleifsdóttir

Jæja þá eru komnar inn fullt af myndum frá því Guðlaugur passaði okkur Mola og svo Egilsstaðaferðinni okkar.

Við erum sem sagt loksins komin heim aftur og langar helst bara að fara aftur austur. Ég er að fara aftur að vinna á morgun svo Moli þarf að vera einn heima, litla greyið. Hann er nú orðinn svo stór að það verður allt í lagi.

Við fórum til að fá seinni sprautuna í gær og hann stóð sig auðvitað eins og hetja, er bara búinn að sofa svolítið mikið síðan. Annars er hann algjör orkubolti og vill helst fá að leika allan daginn.

Well later
HH

Allt að gerast á þessum bæHugborg Hjörleifsdóttir

Þá er Moli mættur á svæðið og það verður að viðurkennast að lífið hefur ekki verið dans á rósum alla daga síðan hann kom. Fyrsta nóttin var nánast alveg svefnlaus því þegar hann loksins hætti að væla og sofnaði þá vældi hann í svefni í staðinn. Dagurinn var því voðalega erfiður, hann hálf kvektur eitthvað og ég rosa þreytt, ekki góð blanda. Þetta hefur því verið upp og niður síðan hann kom til mín en ég vissi það svo sem. Í gær gekk allt bara ótrúlega vel fyrir sig. Við fórum meira að segja í matarboð til Rögnu og hittum Hildi þar. OMG Ragna, takk kærlega fyrir ógó góðan mat. Moli var nú ekki mikið partýljón heldur svaf bara allan tímann. Ég hafði því miklar áhyggjur af því að hann svæfi ekkert í nótt EN viti menn, ég sofnaði rétt fyrir eitt og vaknaði ekki við Mola fyrr en rúmlega átta Surprised Ég auðvitað panikaði þegar ég vaknaði því ég hef þurft að vakna tvisvar yfir nótt til að fara með hann út.... en ég held bara sveimér þá að hann hafi ekki gert neitt í búrið sitt og hafi bara sofið alla nóttina.
Ég er líka ekki frá því að hann sé að fara að borða eðlilega aftur. Í morgun þurfti ég bara að minna hann tvisvar á að það væri matur í dallinum og svo aðeins seinna fór hann bara alveg sjálfur og kláraði matinn sinn Smile ohhh svo stolt móðir, hehe.

Stundum hefur myndin Marley and Me komið upp í hugann síðust daga. Þegar við erum að fara út byrja ég á því að fara í skó og úlpu og ætla svo að halda á honum út þar sem hann kemst ekki strax upp stigann og svona. Moli aftur á móti telur eitthvað annað vera að gerast og tjúllast bara...hleypur beint inn aftur með svaka látum, ég veit ekki hvað ég á að gera við drenginn. Við fórum út í smá göngutúr í gærkvöldi og tókum Bjarna með okkur. Við sem sagt fórum með Bjarna í göngutúr, já eða Moli með Bjarna í göngutúr.... Bjarni var bara móður eftir þetta allt saman. Moli sem sagt sikksakkar um gangstéttina eins og óður og Bjarni hélt í spottann og sikksakkaðist á eftir, gaman að þessu.

Alla vega, nóg í bili. Ég set inn myndir bráðlega.

Tata
HH

Fyrsta heimsóknHugborg Hjörleifsdóttir

Jæja þá er Moli búinn að koma í fyrstu heimsóknina og hún gekk bara ágætlega. Hann auðvitað byrjaði á því að skíta á gólfið og ég verð nú að segja að bæði hvolpur og eigandi stóðu sig nokkuð vel við það verkefni. Hann vældi nánast ekkert í heimsókninni enda nóg af fólki til að leika við hann. Á morgun kemur hann aftur í heimsókn og hún verður svolítið lengri eða um 5 klst eða svo. Það ætti að vera ágætis aðlögun fyrir innflutningsdag sem verður á föstudag. Frá og með föstudegi verð ég því í hvolpaorlofi, vonandi gengur það allt vel.
Mín er nú svolítið farin að kvíða fyrir fyrstu nóttinni Undecided góð ráð eru vel þegin...

Alla vega þá ætla ég ekki að hafa þetta neitt lengra. Ég hef ekki heyrt neitt af aðgerðinni ennþá en samkvæmt planinu þá á hún að vera í næstu viku. Við vitum þó öll að plön ganga sjaldan eftir....

Ég setti inn nokkrar myndir af Mola

Later
HH

HelginHugborg Hjörleifsdóttir

Jæja þá er svaka helgi yfirstaðin. Ég og karlinn fórum í bústað um helgina, alveg alla leið á Bifröst. Við ákváðum að fara á mótorhjóli á Bifröst og OMG hvað það var erfitt. Auðvitað þurfti að koma ógó vont veður á föstudaginn en við erum svo þrjósk og gegt rugluð að við fórum samt af stað í alltof miklu roki. Við vorum sem sagt um 2 og hálfan tíma að fara þessa leið, að vísu fórum við Þingvallaleið og einhverja króka en jiminn hvað það var langt og erfitt. Þetta var svaka lífsreynsla sem ég gleymi ekki í bráð Wink Það meira að segja kom smá snjókoma hehe. Það rættist nú samt alveg úr þessu þar sem við grilluðum okkur góðan mat seint og um síðir og skelltum okkur í voða fínan heita pott. Svo á laugardeginum var voða gott veður, ég fékk meira að segja smá freknur sem er voða vinsælt. Tengdó kíkti í heimsókn á hjóli líka með konuna sína. Þau voru voða svöl á sitthvoru hjólinu, kannski ég verði bara svona líka einn daginn. Alla vega nóg um það, veðrið var voða fínt á leiðinni heim og þá naut maður þess til fulls að keyra um á hjóli Smile

Hef eitthvað lítið annað að segja í bili held ég. Ég kíkti á litla sæta hvolpinn minn á fimmtudaginn og núna er þetta loksins orðið alvöru. Hann er orðinn þriggja vikna og hrikalega sætur. Ef þið skoðið myndirnar þá er molinn minn litli sæti svarti hvolpurinn með rauðu ólina.
Anyways ég ætla að halda áfram að láta mig dreyma um molann minn og fara að undirbúa svefninn.
Later
H

mömmóHugborg Hjörleifsdóttir

First things first, löppin mín er bara alveg hreint ágæt. Ég er komin með þokkalegt brjóst á kálfann sem stækkar í hverri viku. Nú vantar bara geirvörtuna Tongue out neinei segi bara svona. Geri ráð fyrir að ég fari í seinni aðgerðina um miðjan maí eða seinnipart maí. Miðað við hvað þetta gengur hægt eitthvað þá sennilega ekki fyrr en seinnipart mánaðarins.

Og svo er það þetta stóra mömmó mál.
Þann 17. apríl fæddust 9 sætir labrador hvolpar og ég fæ einn Laughing Það fæddust tveir svartir rakkar og ég fæ að velja mér annan þeirra í næstu viku eða um næstu helgi. Svo 12. júní fæ ég hann heim. Ég hlakka rosa mikið til en kvíði líka nett fyrir, ég kann ekkert á svona hvolpa. Ef það væri um barn að ræða þá er ég nokkuð viss hvernig á að meðhöndla það enda passað þau nokkur en það á ekki það sama við um hvolpa. Ég hef meira að segja haldið mig soldið í fjarlægð frá þeim hingað til, eða þar að segja hundum almennt svo ég veit ekkert hvaðan þetta hvolpaæði kemur.

Alla vega það fer alveg að koma að þessu. Hér eru myndir af hvolpunum:
http://holabergsraektun.123.is/pictures/

Ég bara kann ekki að setja þetta eitthvað flott upp svo þið verðið bara að redda ykkur með linkinn. En þarna inni er sem sagt líka myndir af mömmunni sem heitir Lísa og pabbanum sem heitir Lubbi.

Svona í lokinn þá eru allar ráðleggingar og leiðbeiningar vel þegnar. Já og svo er ég ekki alveg búin að ákveða nafnið svo tillögur eru líka vel þegnar.

Tata í bili
H

arg og garg skiljiðiHugborg Hjörleifsdóttir

Að skakklappast um á hækjum er að gera mig gjörsamlega gúgú.

Fyrir það fyrsta þá er mig farið að dreyma um það, í svefni, að ég vakni einn morguninn og standi upp úr rúminu í báðar lappirnar... ekki gott þar sem vinstri fóturinn virkar ekki alveg í augnablikinu. Ég er sem sagt fáránlega hrædd um að skemma eitthvað, eða ég er alla vega hrædd um það í svefni.

Annað þá er ég búin að komast að því að ég er með ógó lélegar hendur. Bara það að fara í búðina gerir alveg út af við mig. Ég fæ meira að segja marbletti í lófana og samt er ég með barnasvampa utan um handföngin! Algjörar baby hendur, hehe.

Svo er það allt hitt. Ég get ekki gengið, á í erfiðleikum með að finna mér að éta því ég þarf að hoppa út allt. Ef mig langar í vatn þá þarf ég að standa við vaskinn og drekka það þar því hey það fer upp úr glasinu þegar marr hoppar með vatn í glasi. Audda er marr búin að redda sér með flösku og svona, en sjút hvað þetta er leiðinlegt til lengdar!!

Ég er svo rosa að deyja úr leiðindum, að vísu er það mest eitthvað sem ég bý mér til sjálf en þig vitið hvernig  þetta er. Það er ekki eins og ég geti farið út að keyra eða út í göngutúr. Kallinn náttla keyrir mig allt sem ég bið hann um en marr reynir að nota það sem allra minnst.

Þetta er sem sagt dagur 10 og ég nenni ekki meir. Vona svo rosa mikið að ég geti farið að ganga á mánudaginn. Svo eftir um 4 vikur þarf ég að ganga í gegnum það nákvæmlega sama aftur. Pjúff ég er ekki farin að hlakka til. Einhvern tíma í maí verður þetta reyndar allt yfirstaðið og vonandi alls þessa virði...

Alla vega ég ætla að hætta að kvarta í bili, fara að borða nammið sem kallinn keypti fyrir mig í dag og já horfa á það setjast á rassinn, lærin og hliðarspikið, OMG. Vonandi get ég lagað það allt í sumar.

Later
H

Það er nú bara þaðHugborg Hjörleifsdóttir

Í dag á elsku litla sæta dúllan mín afmæli, Eyrún Eva er 1 árs Laughing Mér finnst SVO rosa stutt síðan ég og mamma sátum í sófanum heima og litum á símann okkar á svona mínútu fresti því við hlökkuðum svo mikið til að fá sms um að dúllan væri komin í heiminn. Ef allt hefði gengið eftir þá væri ég núna í barnaafmæli að borða fullt af kræsingum og að auki þá ætlaði ég að gista hjá Þorbjörgu vinkonu yfir helgina. Ég er bara hjá ykkur í anda esskurnar Wink

Þessa dagana ligg ég bara með lappirnar upp í loft, eða svona næstum því. Aðgerðin gekk voða vel, ég fékk að fara heim nokkrum klst eftir hana svo það var engin spítalavist hjá mér. Þar af leiðandi fuku ekki þessi 3 kíló sem ég vonaði að færu þessa 3 daga sem ég átti að borða spítalamat... í staðinn bætast örugglega 3 kíló á mig þar sem ég get ekki gengið og ét náttla eins og svín, hehe. Ég má ekki stíga í fótinn fyrr en seinnipartinn í næstu viku svo ég skakklappast um á hækjum!!! OMG ég er sko ekki góð á þeim, er komin með risa mar í báða lófana já og svaka harðsperrur í hægri fótinn og rasskinnina!

Alla veganna þá er náttla ekkert að gerast hjá mér þessa dagana þar sem ég geri ekkert annað en sitja og liggja til skiptis, glápi á sjónvarpið, fikta í tölvunni og er aðeins að fikta við að teikna. Vonandi verður eitthvað fleira til að segja frá síðar.

Átzí, þetta er vont,
later H

Það er löngu kominn mars....Hugborg Hjörleifsdóttir

....og ég ekkert búin að skrifa. Ég er búin að eiga ammili og er orðin soldið eldri, finnst það pínu scary. Orðin 25 ára, OMFG ég er að hugsa um að verða ekki eldri, bara fagna 25 ára ammilinu á hverju ári Smile Ég endaði svaka gott frí á ammilisdeginum mínum og átti kósý dag með kallinum.

Anyways nóg um ammili. Pabbi kom í bæinn á fimmtudaginn, það er náttla bara æði að fá hann reglulega í heimsókn. Hann gerir alltaf það sem ég hef sett á hakann að gera vegna þess að ég hreinlega þori ekki að gera eitthvað. Í þessari ferð skipti hann um viftu inn á klósetti sem er bara draumur einn, þvílík hljóðmengun sem var af þeirri gömlu. Svo setti hann líka upp ljós í stofunni og fyrir ofan eldhúsvaskinn, ljós sem ég fékk í ammilisgjöf frá ma og pa, ógó töff! Og já þokkalega kominn tími til að fá ljós í stofuna, bara eitt ár og rúmir 2 mánuðir síðan ég flutti inn.

Það er alveg hreint furðulegt hvað það er alltaf hreint lítið að frétta. Kannski er það vegna þess marr er alveg hættur að djamma orðið. Hvernig í ósköpunum gat það gerst??? Ég held svei mér þá að ég hafi bara ekki dottið í það á öllu þessu ári, það mætti halda að ég hafi orðið 55 en ekki 25 hérna um daginn....
Á miðvikudaginn fer ég í litla aðgerð til að laga kálfann, verð á spítalanum í nokkra daga og þarf svo að heimsækja spítalann á einhverra daga fresti í sex vikur að mig minnir. Það er pottþétt ástæða til að fara ekki á djammið, hehe nóg til af þeim afsökunum greinilega.

Hmm hef ekkert að segja svo ég ætla að hætta að níðast á tölvunni hans pabba sem hann skildi eftir fyrir mig á meðan mín tölva er dáin Frown
Later
Hugborg

Ég skrapp yfir dalinnHugborg Hjörleifsdóttir

og heimsótti Þuríði Laughing Það var rosa fínt, ég fékk audda köku og nammi og sols. Það er svo endalaust langt síðan ég hef séð hana, ég fékk alveg útrás fyrir taliþörfina já og kökuþörfina. "Litli" brósinn hennar var í heimsókn en hann var lasinn svo ég vona að ég hafi ekki tekið veikindi með mér heim. Ég má alls ekki verða lasin núna því ég er að fara á spítalann í næstu viku til að láta laga örið mitt Laughing Hlakka endalaust mikið til þó ég þurfi að vera þar í 5-7 daga.

Fríið mitt er búið að vera bara ansi gott. Ég fór í bústað með familíunni um síðustu helgi og bústaðurinn var geggjaður. Þar var nuddpottur og útsýnið ógó flott, hefði alveg getað búið þarna. Við fórum í smá leiðangur til Landsvirkjunar, held það heitir Fljótsdalsvirkjun eða eitthvað sols, sem sagt stöðvarhúsið. Fengum að fara í göng lengst inn í fjalli og sjá fullt af einhverjum risa vélum.... kann ekki alveg skil á þessu. Svo keyrðum við líka lengst upp á fjall, næstum alla leið upp að Kárahnjúkum. Þar sáum við stíflurnar sem voru bara ógó töff í veðrinu sem var, mjög fallegt veður og snjór yfir öllu.

Hmmhmmhmm hvað er ég búin að gera fleira.

Ég kíkti á litlu börnin mín og fékk að lesa fyrir svefninn og svona. Voða mömmó í mér. Annars er ég bara búin að vera að slaka á, fara í ræktina og sund með Eínu frænku og svona. Hér er allt á kafi í snjó svo ég og Guðlaugur mokuðum frá pottinum áðan og nú er bara að láta renna í hann svo við getum slakað á þar með eitthvað gott í glasi.

Á morgun ætla Elín og Diddi að halda svaka partý því þau urðu þrítug nýlega. Það verður örugglega svaka stuð og marr fær sér náttla aðeins í aðra tána, ég tala nú ekki þar sem ég verð sjálf 25 þegar líða fer á partýið. Svo er það bara Reykjavíkin eftir hádegið á sunnudag, veit ekki alveg hvað tekur við þar.

Farin í pizzarí... later
XOXO
.......

Ég hélt...Hugborg Hjörleifsdóttir

.... að ég hefði frá einhverju að segja en svo bara kom ekkert. Bloggið verður að bíða nokkra daga í viðbót.
Síða 1 af 7